Svona setur þú upp eSIM á iPhone
Uppsetningin tekur um tvær mínútur. Síminn þarf að vera nettengdur (Wi-Fi dugar) á meðan hún fer fram.
Settu eSIM-ið upp
Opnaðu staðfestingarpóstinn frá okkur og smelltu á „Virkja á iPhone“ — eða skannaðu QR kóðann með myndavélinni. Síminn sér um restina; þetta getur tekið nokkrar mínútur.
Merktu kortið (valfrjálst)
Þegar iOS býður þér að velja heiti á kortin er gott að smella á „Business“ og breyta nafninu í „Travel“ — þá þekkirðu kortið alltaf aftur.
Veldu Primary í næstu skrefum
Í valmyndunum sem fylgja (Default Line, iMessage & FaceTime, Cellular Data) skaltu velja „Primary“. Þá virkar íslenska númerið þitt áfram eðlilega á meðan þú ert enn heima — þú skiptir yfir á Travel þegar þú leggur af stað.
Kveiktu á Data Roaming á Travel kortinu
Farðu í Stillingar („Settings“) → Farsímakerfi („Cellular“) → Travel og kveiktu á „Data Roaming“. Þetta er mikilvægasta skrefið — án þess virkar netið ekki erlendis.
Þegar þú leggur af stað
Slökktu á íslenska kortinu (Stillingar → Farsímakerfi → aðallínan þín → „Turn On This Line“ af) til að koma í veg fyrir rukkun frá fjarskiptafélaginu þínu. Síminn skiptir þá sjálfkrafa yfir á Travel kortið. Viljir þú halda íslenska númerinu virku fyrir SMS og símtöl: slökktu í staðinn á „Data Roaming“ á íslenska kortinu og veldu Travel undir Farsímagögn („Cellular Data“) — en athugaðu að símtöl og SMS geta samt myndað reikning hjá fjarskiptafélaginu þínu.
Þegar þú lendir
Netið tengist sjálfkrafa. Pakkinn þinn byrjar ekki að telja fyrr en þú notar hann fyrst.
Gott að vita: Ef pakkinn þinn nær líka yfir Ísland (t.d. Evrópupakki) skaltu hafa slökkt á Travel línunni þar til þú lendir — annars gæti gildistíminn byrjað of snemma.
Lendir þú í vandræðum? Sendu okkur póst á ferdapakki@ferdapakki.is og við aðstoðum þig.