Hjálp og stuðningur
Allt sem þú þarft að vita um uppsetningu og notkun eSIM
Svona setur þú upp eSIM á iPhone — með myndbandi
Skref fyrir skref frá QR kóða að virku neti á áfangastað — horfðu á myndbandið eða fylgdu skrefunum.
Sjá leiðbeiningar og myndband →Hvenær á að kaupa og virkja?
Kauptu daginn áður, settu upp heima, kveiktu á við lendingu — gildistíminn byrjar við fyrstu tengingu.
Lesa leiðbeiningar →Forðastu reikigjöld á aðalkortinu
Slökktu á gagnareiki fyrir þitt númer áður en þú flýgur — skref fyrir skref fyrir iPhone, Samsung og Pixel.
Lesa leiðbeiningar →Uppsetningarleiðbeiningar
Úrræðaleit
QR kóði virkar ekki
- Gakktu úr skugga um að síminn þinn styðji eSIM
- Reyndu að slökkva og kveikja aftur á símanum
- Athugaðu hvort þú sért með gott ljós þegar þú skannar
- Reyndu að nota handvirku uppsetninguna með LPA kóðanum
Engin þjónusta / No Service
- Athugaðu hvort gagnareiki (Roaming) sé virkt
- Gakktu úr skugga um að rétt lína sé valin fyrir gögn
- Slökktu og kveiktu aftur á símanum
- Reyndu að skipta um netþjóna handvirkt í stillingum
Virkar ekki í útlöndum
- Gildistíminn byrjar þegar þú tengist í fyrsta skipti
- Athugaðu hvort landið sé á lista yfir lönd í pakkanum þínum
- Kveiktu á gagnareiki (Data Roaming)
- Reyndu að velja annað net handvirkt
Gögn klárast fljótt
- Athugaðu hvort bakgrunnsforrit séu að nota gögn
- Slökktu á sjálfvirkum uppfærslum
- Notaðu Wi-Fi þegar það er í boði
- Takmarka sjálfvirka niðurhal og video streaming
Hvernig sé ég hvað er mikið eftir?
Síminn heldur utan um gagnanotkun hverrar línu — á iPhone undir Stillingar → Farsímakerfi („Cellular“) og á Android undir Stillingar → Tengingar → Gagnanotkun. Veldu eSIM-línuna til að sjá hve miklu þú hefur eytt. Ef þú ert í vafa geturðu sent okkur póst og við flettum stöðunni upp fyrir þig.
Algengar spurningar
Hvert er endurgreiðslustefnan?
Þar sem eSIM er stafræn vara sem afhendist samstundis eru kaup almennt endanleg. Ef eSIM-ið virkar ekki vegna tæknilegra vandamála sem rekja má til okkar getum við veitt fulla endurgreiðslu innan 14 daga, enda hafi eSIM-ið ekki verið notað — sendu okkur póst og við skoðum málið. Sjá nánar í skilmálum.
Hvenær byrjar gildistíminn?
Gildistíminn byrjar þegar þú virkjar eSIM-ið og tengist netinu í áfangalandinu í fyrsta skipti. Þú getur keypt það fyrir fram og virkjað það þegar þú kemur á staðinn.
Get ég keypt meiri gögn á sama eSIM?
Já, í flestum tilfellum. Kauptu aftur með sama netfangi og nýi pakkinn bætist sjálfkrafa á eSIM-ið þitt — engin ný uppsetning. Annars færðu nýtt eSIM sent samstundis.
Get ég notað mörg eSIM í einu?
Já! Flestir nýlegir símar geta geymt mörg eSIM og haft eitt virkt í einu. Þú getur skipt á milli þeirra í stillingum.