Svona forðastu reikigjöld á aðalkortinu
Þegar eSIM frá Ferðapakka sér um gögnin erlendis viltu vera viss um að aðalkortið þitt noti ekki gögn í reiki — annars gæti óvæntur reikningur beðið þín heima. Svona gengurðu frá þessu áður en þú flýgur:
iPhone: Slökktu á gagnareiki fyrir aðalkortið
Opnaðu Stillingar („Settings“) → Farsímakerfi („Cellular“). Veldu aðalkortið þitt — línuna með símanúmerinu þínu — og slökktu á „Data Roaming“.
iPhone: Veldu eSIM-ið sem gagnalínu
Í Stillingar → Farsímakerfi → „Cellular Data“ velurðu Ferðapakka eSIM-ið. Þá fara öll gögn í gegnum eSIM-ið — og mundu að kveikja á „Data Roaming“ fyrir eSIM-ið sjálft, það er nauðsynlegt svo það virki erlendis.
Samsung: Gagnareiki af fyrir aðalkortið
Opnaðu Stillingar → Tengingar → SIM-kortastjóri („SIM manager“) og veldu eSIM-ið fyrir farsímagögn („Mobile data“). Farðu svo í Stillingar → Tengingar → Farsímakerfi („Mobile networks“) og slökktu á gagnareiki („Data roaming“) fyrir aðalkortið.
Google Pixel og önnur Android-tæki
Opnaðu Stillingar → Net og internet („Network & internet“) → SIM-kort („SIMs“). Veldu eSIM-ið fyrir gögn og slökktu á reiki („Roaming“) fyrir aðalkortið.
Aðallínan: kveikt eða slökkt?
Öruggasta leiðin er að slökkva alveg á aðallínunni á meðan þú ert úti — þá er engin hætta á rukkun frá fjarskiptafélaginu þínu. Viljir þú halda henni virkri fyrir SMS og símtöl (t.d. staðfestingarkóða frá bankanum) máttu hafa kveikt á henni, en athugaðu að símtöl og SMS geta myndað reikning hjá fjarskiptafélaginu þínu. Notaðu frekar netsímtöl (WhatsApp, FaceTime, Messenger) á meðan þú ert úti.
Valmyndirnar geta litið örlítið öðruvísi út eftir símgerð og hugbúnaðarútgáfu. Ef þú ert í vafa, sendu okkur línu á ferdapakki@ferdapakki.is — við hjálpum þér að ganga frá þessu.