Hjálp og stuðningur

Hvenær á að kaupa og virkja eSIM?

Gildistími pakkans byrjar ekki við kaup — hann byrjar þegar eSIM-ið tengist farsímaneti á áfangastaðnum í fyrsta skipti. Þess vegna mælum við með þessari tímalínu:

1

Kauptu pakkann daginn fyrir brottför

Kauptu eSIM-pakkann daginn áður en þú ferð — eða í síðasta lagi fyrir flugið. Þú færð eSIM-ið sent samstundis í tölvupósti. Það er óhætt að kaupa fyrir fram: gildistíminn byrjar ekki að telja strax.

2

Settu eSIM-ið upp strax — helst heima á Wi-Fi

Skannaðu QR-kóðann úr tölvupóstinum og settu eSIM-ið upp á meðan þú ert enn með gott netsamband. Uppsetningin sjálf ræsir ekki gildistímann — hún kemur eSIM-inu bara fyrir í símanum svo allt sé tilbúið.

Sjá uppsetningarleiðbeiningar fyrir iPhone og Android →
3

Hafðu slökkt á eSIM-línunni þar til þú lendir

Eftir uppsetningu skaltu hafa slökkt á nýju línunni: Stillingar („Settings“) → Farsímakerfi („Cellular“) → veldu eSIM-línuna → slökktu á „Turn On This Line“. Þetta skiptir sérstaklega máli ef pakkinn þinn nær líka yfir Ísland (t.d. Evrópupakkar) — annars gæti eSIM-ið tengst neti hér heima og gildistíminn byrjað of snemma.

4

Fyrir flugtak: slökktu á gagnareiki á aðalkortinu

Svo aðalkortið þitt (símanúmerið þitt) safni ekki reikikostnaði erlendis skaltu slökkva á gagnareiki („Data Roaming“) fyrir það áður en þú flýgur.

Sjá leiðbeiningar: Svona forðastu reikigjöld á aðalkortinu →
5

Við lendingu: kveiktu á eSIM-inu

Kveiktu á eSIM-línunni, veldu hana sem gagnalínu („Cellular Data“) og gakktu úr skugga um að kveikt sé á gagnareiki („Data Roaming“) fyrir eSIM-ið — það er nauðsynlegt og kostar ekkert aukalega á eSIM-inu. Síminn tengist netinu á nokkrum mínútum, og þá fyrst byrjar gildistíminn að telja.

Gott að vita: Ef pakkinn þinn gildir aðeins fyrir áfangalandið (t.d. Tyrklandspakki) getur eSIM-ið ekki tengst neti á Íslandi — gildistíminn byrjar þá örugglega ekki fyrr en þú lendir.

Vantar þig aðstoð?

Sendu okkur línu og við leysum þetta saman.

ferdapakki@ferdapakki.is