Algengar spurningar

Svör við algengum spurningum um eSIM

Almennt

Hvað er eSIM?

eSIM (embedded SIM) er stafrænt SIM kort sem er innbyggt í símann þinn. Þú getur virkjað það með því að skanna QR kóða eða nota iOS Tap tengil, án þess að þurfa líkamlegt SIM kort.

Hvernig virkar þetta?

Þú kaupir pakka á vefnum okkar, færð QR kóða sent á netfang, skannar hann í símanum þínum, og þú ert tilbúinn að nota gagnapakkann í áfangalandinu.

Styður síminn minn eSIM?

Flestir nýlegir símar styðja eSIM, þar á meðal iPhone XS/XR og nýrri, Samsung Galaxy S20 og nýrri, Google Pixel 3 og nýrri. Sjá allan listann á "Studdir símar" síðunni.

Kaup og verð

Hvað er innifalið í verðinu?

Verðið inniheldur allt: gagnapakkann, eSIM virkjun, og tækniþjónustu. Engin falin gjöld, engin reikigjöld.

Hvaða greiðslumáta getið þið tekið við?

Við tökum við Visa, Mastercard, Apple Pay og Google Pay í gegnum örugga greiðslusíðu.

Get ég fengið endurgreiðslu?

Þar sem eSIM er stafræn vara sem afhendist samstundis eru kaup almennt endanleg. Ef eSIM-ið virkar ekki vegna tæknilegra vandamála sem rekja má til okkar getum við veitt fulla endurgreiðslu innan 14 daga, enda hafi eSIM-ið ekki verið notað — sendu okkur póst og við skoðum málið. Sjá nánar í skilmálum.

Virkjun og notkun

Hvenær byrjar gildistíminn?

Gildistíminn byrjar þegar þú virkjar eSIM-ið og tengist netinu í áfangalandinu í fyrsta skipti. Þú getur keypt það fyrir fram og virkjað það þegar þú kemur á staðinn.

Hvað gerist ef ég nota öll gögnin?

Á föstum gagnapökkum rofnar netsambandið einfaldlega þegar gagnamagnið klárast — engin aukagjöld leggjast á og þú getur keypt nýjan pakka hvenær sem er. Á ótakmörkuðum pökkum stoppar netið aldrei: hraðinn lækkar þegar daglegi háhraðakvótinn klárast og endurnýjast daglega.

Get ég keypt meiri gögn á sama eSIM?

Já, í flestum tilfellum. Þegar þú kaupir aftur með sama netfangi og eSIM-ið er enn uppsett í sama síma bætist nýi pakkinn sjálfkrafa á eSIM-ið þitt — engin ný uppsetning. Annars færðu nýtt eSIM sent samstundis í tölvupósti.

Hvernig virka ótakmarkaðir pakkar?

Ótakmarkaðir pakkar veita þér gögn alla daga ferðarinnar án heildarþaks. Sanngjörn notkun gildir: fyrsta 1 GB hvers dags er á fullum hraða, síðan lækkar hraðinn — og allt endurnýjast á hverjum morgni. Þú missir aldrei samband og greiðir aldrei aukalega.

Get ég hringt og sent SMS?

Nei, pakkarnir okkar eru eingöngu fyrir gögn. Þú getur notað WhatsApp, FaceTime, Skype, eða önnur netforrit til að hringja og senda skilaboð.

Virkar eSIM á mörgum símum?

Nei, hvert eSIM er bundið við einn síma. Ef þú þarft eSIM fyrir marga síma þarftu að kaupa sérstakan pakka fyrir hvern síma.

Get ég notað eSIM ásamt íslenska SIM-kortinu mínu?

Já! Flestir nýlegir símar styðja Dual SIM (tvö SIM í einu). Þú getur haldið íslenska SIM-kortinu virku fyrir símtöl og SMS og notað eSIM-ið fyrir gögn erlendis.

Tæknileg atriði

Þarf ég að taka út íslenska SIM kortið mitt?

Nei! Þú getur haldið íslenska SIM kortinu þínu í símanum og notað eSIM samhliða. Flestir nýlegir símar styðja Dual SIM.

Hvernig veit ég hvað er mikið eftir?

Síminn heldur utan um gagnanotkun hverrar línu — veldu eSIM-línuna í stillingum símans til að sjá hve miklu þú hefur eytt. Ef þú ert í vafa geturðu sent okkur póst og við flettum stöðunni upp fyrir þig.

Hvað gerist ef síminn minn eyðileggst eða glatast?

Því miður er ekki hægt að flytja eSIM á nýjan síma eftir virkjun. Hafðu samband við okkur og við finnum bestu lausnina með þér.

Get ég notað eSIM í hotspot?

Já, ef síminn þinn styður hotspot virkni geturðu deilt tengingu með öðrum tækjum. Athugaðu þó að þetta getur notað gögnin hratt.

Landsvæði og þekja

Í hvaða löndum virkar þetta?

Við bjóðum upp á pakka fyrir 100+ lönd víðs vegar um heiminn. Sjá "Pakkar" síðuna til að sjá öll lönd sem eru í boði.

Virkar þetta í öllum borgum?

Já — eSIM-ið tengist sömu farsímakerfum og heimamenn nota. Þar sem símafyrirtæki á staðnum ná sambandi virkar eSIM-ið líka.

Hvaða net tengjast ég við?

Við höfum samstarf við helstu símafyrirtæki í hverju landi. Síminn þinn velur oft besta netið sjálfkrafa.

Ertu enn með spurningar?

Við erum hér til að hjálpa þér

Fara í hjálparmiðstöð