Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 01.11.2026

1. Inngangur

Hjá Ferðapakki.is tökum við persónuvernd alvarlega. Þessi stefna útskýrir hvaða upplýsingar við söfnum, hvernig við notum þær og hvernig við verndum þær. Við leggjum ríka áherslu á að gagnsæi og öryggi sé í fyrirrúmi við vinnslu persónuupplýsinga.

Stefnan gildir bæði um vefsvæðið ferdapakki.is og Ferðapakka appið fyrir iPhone og Android.

2. Upplýsingar sem við söfnum

Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu okkar.

Persónuupplýsingar

  • • Netfang til að senda eSIM og leiðbeiningar.
  • • Pöntunarsaga.

Greiðsluupplýsingar

Unnar af öruggum greiðsluaðilum. Við hvorki sjáum né geymum kortanúmerin þín.

Notkunarupplýsingar eSIM
Til að veita og styðja þjónustuna vinnum við tæknilegar notkunarupplýsingar um eSIM-ið þitt: notað gagnamagn, tengistöðu og hvaða farsímaneti/landi eSIM-ið tengist. Þetta er nauðsynlegt vegna uppgjörs við neterlenda samstarfsaðila, framfylgni sanngjarnrar notkunar og þjónustu við þig. Við sjáum ekki innihald netnotkunar þinnar.

Tæknilegar upplýsingar
Við söfnum einnig tækniupplýsingum, svo sem IP-tölu, vafragerð og tækisupplýsingum, í öryggisskyni og til að bæta notandaupplifun á vefnum.

Í appinu notum við netfangið þitt til innskráningar með einnota kóða og til að tengja aðganginn við eSIM, pantanir og kvittanir. Við varðveitum einnig auðkenni uppsetningar appsins, upplýsingar um valda ferðadaga og áfangastaði og erindi sem þú sendir í gegnum hjálparhluta appsins.

3. Hvernig við notum upplýsingar

Við notum upplýsingarnar þínar til að:

Í appinu notum við þessar upplýsingar einnig til að sýna pakkana þína, gagnanotkun, gildistíma og kvittanir, veita þér aðgang að fyrri kaupum við innskráningu og svara hjálparbeiðnum. Upplýsingar um virkjun og tengingu koma frá fjarskiptaþjónustunni. Appið biður ekki um aðgang að GPS-staðsetningu símans.

4. Miðlun upplýsinga

Við miðlum ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila nema þegar það er nauðsynlegt:

Ef þú leyfir tilkynningar frá appinu geymum við tilkynningaauðkenni tækisins og notum Apple Push Notification service á iPhone eða Google Firebase Cloud Messaging á Android til að senda þjónustutilkynningar. Viðkomandi þjónustuaðili fær tilkynningaauðkenni og tæknilegar upplýsingar sem þarf til að afhenda tilkynninguna. Þú getur slökkt á tilkynningum í stillingum símans.

5. Vefkökur

Við notum vefkökur (cookies) til að tryggja að vefsíðan virki rétt. Þær hjálpa okkur að muna stillingar og greina hvernig vefurinn er notaður. Með samþykki þínu (í vefkökuborða) notum við einnig Google Analytics til að greina notkun vefsins og Google Ads til að mæla árangur auglýsinga. Þessi verkfæri eru óvirk þar til þú samþykkir. Þú getur stjórnað vefkökum í stillingum vafrans og breytt vali þínu hvenær sem er.

6. Gagnageymsla

Við geymum upplýsingar þínar eins lengi og nauðsynlegt er til að uppfylla þjónustu okkar:

7. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á aðgangi að gögnum þínum, að leiðrétta þau eða láta eyða þeim.

Þú getur eytt aðgangi þínum í appinu undir Aðgangur eða óskað eftir eyðingu með tölvupósti á ferdapakki@ferdapakki.is. Við fjarlægjum persónuupplýsingar aðgangsins og þjónustuspjall þegar óloknar greiðslur og pantanir hafa verið afgreiddar. Nauðsynleg pöntunar- og bókhaldsgögn og upplýsingar sem þarf til að viðhalda keyptri þjónustu eru varðveitt áfram eftir því sem þörf krefur. Eyðing aðgangs fjarlægir ekki eSIM úr símanum og felur ekki í sér beiðni um endurgreiðslu.

8. Öryggi

Við verjum gögnin þín með ýmsum ráðstöfunum:

9. Breytingar

Við uppfærum þessa stefnu reglulega til að endurspegla breytingar á starfsemi okkar eða lagalegu umhverfi.

10. Tengiliðir

Ef þú hefur spurningar um þessa stefnu eða persónuvernd þína, vinsamlegast hafðu samband í gegnum hjálparmiðstöð okkar.